GLEÐILEGT ÁRIÐ ALLIR!
enn eitt árið gengið í garð og mér líður pínu eins og tíminn sé á
hraðspóli! þetta er varla fyndið lengur, ég er hreinlega farin að
óttast um líf mitt, það verður búið áður ég næ að lyfta litla
fingri!!

hehe....förum samt ekkert nánar útí neitt svartsýnistal...ég er
bara fullviss um að 2007 á eftir að vera enn betra ár en 2006, sem
var þó bara ansi gott ár

ekki satt?
og svo það helsta sem stóð uppúr á nýliðnu ári...ehe...eða það sem
ég man:
...ógleymanlega skemmtilegt afmælispartý hennar sólu hér á
tryggvagötunni þar sem mættu um 60 manns!
...kláraði fyrsta árið í líffræðinni...hehe, mér finnst það afrek
þó ég hafi ekki haldið áfram

...fór í mitt fyrsta söngpróf
...fór til færeyja að heimsækja pabba, þar sem ég m.a. spilaði Kana
á hverju einasta kvöldi

...Hróarskelduævintýrið auðvitað!! ætla sko aftur í ár!
...Berlínarævintýrið að sjálfsögðu!!! Sigrún, við leggjum sko aftur
saman í svona reisu takk!
...versló, og þar með mjög eftirminnilegt Pallaball á Sigló

...fór á rjúpnaskytterí í fyrsta skipti og labbaði örugglega af mér
nokkrar kaloríurnar í þeirri ferð

...og jú fékk að skjóta líka í
fyrsta skipti!
...uuu hvað fleira...
...fékk mér tattú!!!
...var stoppuð af löggu í fyrsta skipti, en slapp samt með
skrekkinn því þetta var aðeins tékk á ástandi ökumanna, hehe

...gerði það í flugvél.....uuu....NEI....nú er ég aðeins að ýkja!!!
hahaha
úff nóg af fortíðinni....hver veit hvað verður brallað þetta
árið
einhver áramótaheit annars???
en það sem varð svo um mig um áramótin sjálf....hmm...
kom aftur suður þann 29. þó svo að ég hefði engin major
áramótaplön. var samt planað að hitta hana Ingibjörgu mína sem kom
heim frá Sverige í jólafríinu, sem ég og gerði, og tókum við ásamt
fleirum alveg heil tvö snilldardjömm! fyrra skiptið ekki farið að
sofa fyrr en um 8 leytið um morguninn og í seinna skiptið var vakað
til 10!! ekki af verri endanum það

....en hvar varst þú
þórdís??? :/
æjiiii.......verð að segja svona rétt í lokin að við eigum
örugglega krúttlegasta kisann í heiminum! var að koma með hann heim
áðan frá dýralækninum þar sem var verið að taka greyið okkar úr
sambandi (vonað þetta þyki ekki neitt of dónalegt umræðuefni...) en
allavega, hann var auðvitað svæfður og er ennþá hálf vankaður
greyið....labbar um gólf eins og belja á svelli, dettur svo á
rassinn inn á milli og skilur ekkert af hverju hann er allur svona
máttlaus. æjhh hann er náttla baara sætur!
OBB .....verð að kveðja í bili.....kötturinn kominn á hliðina!!